Vöknuðu
ekki allir hressir og kátir í morgun!?! Ég hefði haldið það á
þessum fallega sunnudagsmorgni!

Gærkvöldið var rosalegt... Vægast sagt! Dagurinn minn
byrjaði á því að ég vaknaði og tók herbergið mitt í gegn
Tók til
frammi og þreif..Allveg missti mig í hreingerningunum! Svo kom
mamma heim, feitt ánægð með kjelluna! 

Sem er töff.. Þess má líka geta að Nanna mín ástkæra
keypti sér eitt stykki bíl í gær! Og ekki af verri kantinum! '97
módel Opel Corsa! Og bíðiði.. GULUR! Eins og öllum bílum sæmir þá
skírði Nanna.. GULA ÞRUMAN! Beware! ..Of the YELLOW THUNDER! hehe
Já kom ekki Nanna á glæsikerrunni sinni rúllaði upp hjá mér og
viðog Meistarinn sjálfur, Mummi kíktum í ljós fyrir kvöldið...


Eftir það fór Mummi heim til sín að gera sig sætan fyrir
kvöldið og sama með mig og Nönnu, fórum heim til mín og fórum í föt
og máluðum okkur, það var slétt á sér hárið og hlustað á
tónlist..Þetta tók um það bil 2 tíma!
hehe Svo rúlluðum við á select til þess að kaupa helstu nauðsynjar
fyrir kvöldið. Þar hittum við Ingþór beibílósjon og Sjonna
súkkulaði dreng og það var eki sparað kaldhæðnina í garð bílsins!
Bjálfar..

Hehe en já svo kom ekki annað til greina en að taka
laugarveginn á þetta á gulu þrumunni! hehe Við mikin fögnuð
borgarbúa! Næsta stopp var Pizza King! Hlaða batteríin fyrir
kvöldið.. hehe ég og Nanna erum svo óógeðslega blankar að við
keyptum eina sneið og borðuðum hana saman!!!

Brillijant en já eftir það var bara eitt stopp eftir og
það var ástkæri Hverfisbarinn! Shit ég hef ALLDREI séð Hverfis
svona stappaðann! Shit það var ekki þverfótandi fyrir fólki! Allt
vitlaust fólk dansandi upp á borðum afþví að það var ekki pláss
annars staðar! Crazyness! Brjálað fokking stuð! Ógeðslega
gaman!

En já svo eftir það fórum við bara heim, Nanna skutlaði
vin hanns Geira heim og ég fór með Geira. Bíllinn hanns er í
viðgerð þannig að hann var á bílnum hanns Gumma Borgar, sem var svo
mikill herramaður að hann sat í aftursætinu í sínum eigin bíl svo
að daman geti setið í shotgun! En já Geir skutlaði Nonna held ég að
hann heiti og Gumma heim til sín svo fórum við heim til mín.
Jápp ég held að ég hafi coverað mestann daginn í grófum
dráttum!





ltr.Peepz